Vissuferð er skemmtileg, þá veistu hvert þú ert að fara og við sjáum um allt.
Af hverju að búa til hópefli?
Það geta verið afar ólíkar þarfir að baki og því mikilvægt að hugsa það alla leið með útkomuna í huga. Hérna eru möguleikarnir endalausir, á skemmtanagildið að vera í fyrirrúmi eða skiptir mestu að áskoranirnar séu ögrandi? Útfærslur og áskoranir verða alltaf að vera í takt við tilefnið. Ávinningur vel heppnaðs hópeflis á alltaf að viðhalda og/eða auka traust og samkennd liðsheildarinnar.
Við leggjum mikla áherslu á góða þarfagreiningu svo við vinnum örugglega með það sem skiptir mestu máli. Við höfum farið margar leiðir og finnst fátt skemmtilegra en að vinna hópefli með krefjandi hópi. Oft er hópefli sett inn í aðra vinnu svo sem starfsdag eða þemaferð. Við finnum pottþétt sameiginlega leið að markinu.
Ævintýraferð getur gert gæfumuninn.
Hvert er markmið dagsins? Hver er tilgangurinn? Við förum bæði óhefðbundnar og hefðbundnar leiðir með starfsdaginn, allt eftir ykkar þörfum.
Virði velheppnaðs starfsdags verður seint ofmetið. Það að tryggja að allir rói í takt, að við séum eitt lið, að fólkið okkar sé helgað í starfi og tilbúið til að takast á við áskoranir morgundagsins er ein lykilforsenda fyrir velgengni fyrirtækja nútímans. Við hjálpum þér að móta skýr markmið fyrir daginn ykkar. Við sníðum dagskrána að þínum þörfum og markmiðum svo dagurinn skili tilsettum árangri og sé í leiðinni stórskemmtilegur. Við framkvæmum svo daginn með þér því við erum með úrvalslið fagfólks í okkar röðum enda persónuleg þjónusta eitt af okkar gildum.
Það er okkar fag að veita þér þetta „Extra - krydd“ sem gerir gæfumuninn í þínum viðburði!
Hvataferð, eins og nafnið segir, hefur þann tilgang að hvetja mannauðinn áfram. Hún er ein leið til að fagna sigri eða áfanga, þakka fyrir vel unnin störf, byggja og viðhalda góðum starfsanda, fanga sigurtilfinninguna og efla helgun í starfi.
Það er svo hollt og gott að skipta um umhverfi því það er ótrúleg orka sem leysist úr læðingi við það. Hvataferð getur verið bara ein og sér eða sem hluti af einhverju meiru svo sem starfsdegi, ráðstefnu eða árshátíð.
Við erum hugmyndarík og markmið okkar er að fara fram úr ykkar væntingum.
Vertu enn meira PRO
Flestum okkar finnst gaman að láta koma okkur á óvart. Við þekkjum líka að það er mjög gefandi að koma öðrum á óvart – þess vegna skemmtum við okkur ótrúlega vel við að skipuleggja óvissuferðir og óvissuviðburði og leggjum metnað okkar í að þeir slái í gegn.
Það er krefjandi að skipuleggja óvissuferð svo öllum líki og leggjum við metnað okkar í að þeir falli sem allra best að menningunni svo að þeir slái í gegn. Hér eru möguleikarnir margir og skipuleggjum við óvissuferðir hvort sem er hérlendis eða erlendis.
Óvissuferð er fyrir þá sem þora – við leggjum metnað okkar í að slá í gegn.
Þemaferðir eru sérsniðnar ferðir að ykkar óskum. Hér gæti verið um að ræða árshátíðarferð eða ferð vegna stórafmælis eða vinnufundar.
Þemaferðir eru búnar til í algeru samráði við stjórnendur með ávinninginn af viðburðinum í huga. Hvert er tilefnið? Hver á ávinningurinn að vera? Á ferðin að vera innanlands eða erlendis? Við erum með frá upphafi til enda eins og í öllum okkar viðburðum.
Hópefli – viltu óhefðbundnar leiðir?
Áttu von á erlendum gestum og hefur ekki tíma til að skipuleggja allt sem þarf fyrir þá? Áttu von á starfshópi erlendis frá eða frá öðrum starfsstöðvum hérlendis? Það eru gjarnan ótrúlega mörg handtök sem fylgja því að taka á móti gestum – það þekkjum við þar sem við aðstoðum fjölda fyrirtækja með því að vera hinn vandaði og trausti gestgjafi sem gerir dvölina árangursríkari og ánægjulegri.
Hugmyndavinna - Við erum fersk.
„PROevents aðstoðuðu okkur við að halda utan um fyrsta vinnudag starfsmanna Stjórnarráðsins í mars 2015 sem haldinn var í Hörpu. Við vorum mjög ánægð með þeirra framlag, útsjónarsemi og næmni fyrir okkar þörfum."
Ragnhildur Arnljótsdóttir
ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneytinu
„Stjórnendamarkþjálfun PROcoaching var góð blanda af fræðilegum pælingum og sjálfstrausts þjálfun fyrir unga stjórnendur. Hressileg og kröfuhörð nálgun Ragnheiðar var uppbyggileg og árangursrík.”
Ingibjörg Sverrisdóttir
rekstrarstjóri ZARA á Íslandi
„Við höfum unnið með PROevents við ýmiskonar viðburði hjá Whales of Iceland sl. tvö ár - það hefur verið einstaklega ánægjulegt í alla staði. Við leituðum þvi til þeirra til að hafa umsjón með okkar eigin viðburði þann 18.maí sl. Fagmennskan fullkomin – einstaklega jákvæð og þægileg samskipti, sem skiptir okkur gríðarlegu máli. Hægt að treysta öllu fullkomlega – og partýið fór fram úr okkar björtustu vonum! Mæli 100% með samstarfi við þau Nonna og Röggu – og þeirra starfsfólk :)“
Sædís Guðmundsdóttir
Framkvæmdastjóri Whales of Iceland
„Þetta var alveg mögnuð árshátíð – frábærlega að verki staðið - PROevents eiga mikið hrós skilið :)“
Þorsteinn Þorsteinsson
fjármálastjóri Rúmfatalagersins
Við mælum heilshugar með PROevents og þeirra persónulegu og fagmannlegu þjónustu. Áttum stórgóðan hópeflisdag sem þau Ragga og Jón undirbjuggu fyrir nýjan hóp. Gætum ekki verið ánægðari.
Áslaug Lind Guðmundsdóttir
Manager, RA Finance Sr.
„PROevents sáu um frábæran hópeflisdag fyrir 150 starfsmenn Vísis hf. sem heppnaðist svona glimrandi vel. Þrátt fyrir að hópurinn væri stór og fjöltyngdur náðist að þjappa hópnum vel saman og gleðin skein úr hverju andliti. Kærar þakkir fyrir okkur!"
Ágústa Óskarsdóttir
starfsmannastjóri Vísis hf.
„Við viljum þakka kærlega fyrir frábæra ferð og framúrskarandi þjónustu. Allir eru í skýjunum yfir ferðinni og vonandi fáum við að hafa þig í bakhöndinni næst."
Starfsmannafélag ríkisskattstjóra
„Frábært samstarf við Jón og hans fólk sem gerðu glæsilega móttöku fyrir viðskiptavini okkar með sniðugum hugmyndum - mæli hiklaust með þeim."
Sonja Hlín Arnarsdóttir
verkefnastjóri Borgun
„Við hjá Valitor fengum PROevents til að halda utan um og skipuleggja dagskrá á starfsdeginum okkar sem haldinn er einu sinni á ári. Dagskráin og skipulagningin var eins og best verður á kosið. Dagurinn var mjög skemmtilegur og mikil ánægja með hann meðal starfsmanna. Við getum hiklaust mælt með PROevents í svona verkefni."
Stefán Ari Stefánsson
mannauðs- og rekstrarstjóri Valitor
„Ferðin okkar var frábær í alla staði, Jón sá til þess að allt gekk fullkomlega upp, fólkið okkar naut sín í botn og ég alveg áhyggjulaus - þetta var tær snilld."
Harpa Víðisdóttir
mannauðsstjóri hjá Verði tryggingum
“Þetta var alveg frábært, svo skemmtilegt og passlegt og allir hæstánægðir. Allt 120% frá upphafi til enda hjá ykkur”
Ragnheiður Valdimarsdóttir
Mannauðsstjóri Vita og Iceland Travel
„Nefndin fékk PROevents til þess að framkvæma róttækar breytingar á hátíð bæjarstarfsmanna. Jón og hans fólk bættu heilmiklu „kryddi" við upphaflegu hugmyndina og niðurstaðan, frábærlega vel heppnuð hátíð sem verður lengi í minnum höfð."
Árshátíðarnefnd Hafnarfjarðarbæjar
„PROevents kom lokahófi árgangamóts ÍA á hærra level og bjó til sannkallaða carnival stemmningu sem fór gríðarvel í mannskapinn. Hugmyndaauðgi og útsjónarsemi á hæsta stigi. Við mælum hiklaust með PROevents."
Haraldur Ingólfsson
framkvæmdastjóri KFÍA
„Við mælum eindregið með þjónustu PROevents. Þau sáu um starfsdag fyrir okkur sem var gríðalega vel lukkaður. Það sem einkenndi daginn var jákvæðni, gæði og fagmennska. Allt utanumhald og skipulag við daginn var einnig með besta móti."
Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir
starfandi stjórnarformaður Prentmets ehf.
„Vil þakka kærlega fyrir fjölskyldudaginn. Þetta gekk vonum framar og allir hæstánægðir með daginn.”
Þóra Birna Ásgeirsdóttir
mannauðsstjóri Elkem
„PROevents hafa unnið með okkur óvissuferðir undanfarin tvö ár og hafa farið fram úr okkar björtustu vonum.
Þau hafa náð upp frábærri stemmningu og kröftugu hópefli þó hópurinn hafi verið stór.”
Svanhvít Friðriksdóttir
upplýsingafulltrúi WOW air
„Golfklúbburinn Leynir réð PROevents til að skipuleggja lokahófið á Íslandsmótinu í golfi 2015 og tókst það afar vel. Við hjá GL vorum mjög ánægð með allt skipulag og framkvæmd og höfðu gestir orð á því hvað lokahófið væri glæsilegt.”
Guðmundur Sigvaldason
framkvæmdastjóri GL
Við hjá Íslenskri erfðagreiningu höfum fengið ProEvents til að skipuleggja tvær árshátíðir fyrir okkur. Okkur fannst mjög gott að vinna með þeim, þau hlustuðu vel á okkur og komu með lausnir sem hentuðu vel okkar fyrirtæki. Þau eru mjög áreiðanleg, fagleg og stútfull af góðum hugmyndum.
Ég mæli hiklaust með þjónustu ProEvents.
Hrefna Thoroddsen
Starfsmannastjóri ÍE
"Proevents voru mjög fagleg í undirbúningi og framkvæmd vorferðar starfsmanna upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka. Þau voru sérlega sveigjanleg og útsjónarsöm, og góð í að aðlaga dagskrána aðstæðum og veðri. Algerlega sérsniðið að okkar þörfum og ferðin sló í gegn. Við mælum eindregið með PROevents. Takk fyrir okkur.
Laufey Ása Bjarnadóttir
Verkefnastjóri UT-sviðs Íslandsbanka
“Þetta var alveg frábært, svo skemmtilegt og passlegt og allir hæstánægðir. Allt 120% frá upphafi til enda hjá ykkur”
Ragnheiður Valdimarsdóttir
Mannauðsstjóri Vita og Iceland Travel
PROevents/PROcoaching skipulagði og framkvæmdi fyrir okkur fjórar vinnustofur þar sem lögð var áherslu á jákvæða leiðtogafærni og öflugari liðsheild. Hver vinnustofa hafði mismunandi áherslur útfrá þarfagreiningu sem unnin var í samráði við stjórnendahóp sviðsins, sem samanstóð af 33 stjórnendum frá fimm ólíkum deildum innan sviðsins. Þannig tryggðum við í sameiningu að bæði tíma og fjármagni væri sem best varið.
Niðurstaða af samstarfi okkar við PROevents/PROcoaching er að mínu mati skarpari fókus á þá þætti sem skipta máli í okkar starfsemi, bætt þekking stjórnenda og þéttari liðsheild. Geri menn betur!
Samstarf við Ragnheiði var til fyrirmyndar, 100% þjónusta á alla vegu !
Einkunnargjöf : 10
Viktor Ellertsson
Mannauðsráðgjafi - Landspítali háskólasjúkrahús
„Kærar þakkir fyrir afar gott samstarf og árangursríka þjálfun. Ragnheiður heyrir raddir allra, tengir ólík sjónarmið einkar vel og hefur sterkt innsæi. Hún er snögg að setja sig í spor annarra og kemur ávallt beint að kjarna málsins. Kallar fram það besta í fólki, nær fram hreinskiptum, traustum og lausnamiðuðum samskiptum sem færa árangur."
Brynjar Viggósson og Nanna Herborg Tómasdóttir
flutningasviði Eimskips
„Við hjá Öryggismiðstöðinni leituðum til PROevents og PROcoaching til þess að aðstoða okkur með hugmyndir og framkvæmd að vinnudegi fyrir starfsfólk ásamt skemmtun. Traust þjónusta og fagleg vinna skiluðu okkur sérstaklega skemmtilegum degi og án efa mjög árangursríkum líka. Við erum ánægður viðskiptavinur þessa kraftmikla fyrirtækis. Takk fyrir okkur."
Daði Þór Veigarsson
framkvæmdastjóri sölusviðs
Við í Arctic Adventures héldum sameiningarpartý aldarinnar í nóvember 2017. Það var einstaklega ánægjulegt að eiga samskipti við PROevents. Fagmennska og úrræðagóð þjónusta með þarfir viðskiptavinar síns ávallt í huga. Það var okkur ómetanlegt að nýta þekkingu og reynslu PROevents fyrir þennan viðburð okkar.
Anna María Þorvaldsdóttir
Framkvæmdastjóri mannauðs
„PROevent sá um alla umgjörð um skemmtun fyrir okkar viðskiptavini. Allt ferlið var verulega traustvekjandi, gott skipulag, góður undirbúningur, næmt auga fyrir skemmtilegum smáatriðum. Virkilega þægilegt og áhyggjulaust ferli og umgjörð sem olli mikilli hrifningu gesta okkar."
Örn Viðar Skúlason
eigandi Proact
„Glæsileg frammistaða bæði í skipulagningu og framkvæmd. Nauðsynlegt að hafa traustan aðila innan handar þegar allt þarf að ganga hnökralaust. Við mælum eindregið með PROevents."
Halldór Ægir Halldórsson
vörumerkjastjóri Haugen Gruppen
"LOCAL lögmenn nutu leiðsagnar og ráðgjafar frá PROcoaching í stefnumótunarvinnu lögmannsstofunnar. Ragnheiður er mikil fagmanneskja og ráðgjöf hennar og leiðsögn veitti okkur mikilvæg tæki til að vinna með innan fyrirtækisins þegar stefna þess var yfirfarin og mörkuð".
Eigendur
Local lögmenn
"Við hjá Íslandspósti erum alsæl með aðkomu Jóns og PROevents að árshátíð okkar og 20 ára afmælishátíð sem var haldin nú í nóvember. Jón er einstaklega lipur, hugmyndaríkur og snjall og virkilega gaman að vinna með honum að þessum stóra viðburði. Öll aðkoma PROevents að árshátíðinni var til fyrirmyndar í alla staði og við mælum 100% með þeim í verkefni sem þetta. Takk fyrir okkur!"
Sigríður Indriðadóttir
Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Íslandspósts
„PROevents komu að skipulagningu og framkvæmd tveggja stærstu viðburða Já árið 2014, ráðstefnunni „Sko“ sem haldin var í Hörpu og árshátíðinni okkar. Báðir viðburðirnir heppnuðust einstaklega vel og þjónusta PROevents var til fyrirmyndar. Takk fyrir okkur!“
Sigríður Margrét Oddsdóttir
forstjóri JÁ
„PROevents stóð svo sannarlega undir nafni varðandi lokahóf EM landsliða því fagmennskan skein alls staðar í gegn. Við munum án efa leita aftur til Jóns og félaga við næsta stórverkefni."
Gunnar Björnsson
forseti Skáksambands Íslands
„PROevents aðstoðaði við undirbúning á Herrakvöldi Víkings sem gerði það að verkum að þessi skemmtun hefur aldrei verið betri."
Friðrik Magnússon
formaður Knattspyrnudeildar Víkings
„Starfsmannafélag Þorbjarnar ákvað að hafa samband við PROevents vegna skipulagningar við árshátíð félagsins og urðum við sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. PROevents eru fagmennskan uppmáluð og sáu þeir um allt frá upphafi til enda. Skemmtiatriðin, utanumhaldið og árshátiðin sjálf heppnaðist gríðalega vel. Við mælum hiklaust með þjónustu þeirra.“
„Við fengum PROevents til að sjá um afar vel heppnaða viðburði fyrirtækisins í vetur; starfsdag og glæsileg 60 ára afmælisboð bæði í Reykjavík og á Akureyri. Að vinna með Jóni og Ragnheiði er ávísun á fagmennsku, hugmyndaauðgi og einstakan drifkraft. Við mælum hiklaust með þessum snillingum!"
Reykjafell
Hannes Jón Helgason
framkvæmdastjóri og eigandi
„PROevents gerði starfsdaginn okkar faglegan, árangursríkan og skemmtilegan - STOMPIÐ hitti beint í mark. Frábært samstarf."
Hrafnhildur Hauksdóttir
starfsmanna- og gæðastjóri BL
„Kærar þakkir fyrir frábæran dag þann 13.maí og enn fremur fyrir allan undirbúninginn undanfarnar vikur og mánuði. Samstarfið við ykkur gekk með eindæmum vel og við erum í skýjunum með afmælishátíðina og ferðaskrifstofupartýið sem bæði tókust frábærlega. Þið eruð snillingar og mikið fagfólk :)"
Árni Gunnarsson
framkvæmdastjóri Air Iceland Connect
„PROevents stóðu alveg undir væntingum hvað snerti framkvæmd. Allt stóð eins og stafur á bók. Einnig eiga þau hrós skilið fyrir hugmyndavinnu og að mæta hverri áskorun sem upp kom í undirbúningi með hagnýtum lausnum og jákvæðu hugarfari.”
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri Marel á Íslandi.
„PROevents löðuðu fram það besta í okkar teymi. Fjölbreytt og sérsniðin dagskrá vinnudags Marel á Íslandi hitti svo sannarlega í mark. Við tókum með okkur frábært veganesti fyrir það sem framundan er."
Nótt Thorberg,
framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
“Það var almennt mikil ánægja með árshátíðina og þið hjá PROevents eigið hrós skilið fyrir frábæra vinnu og gott utanumhald”.
Árshátíðarnefnd Landsvirkjunar
„Það er öruggt að fólk hefur sjaldan eða aldrei skemmt sér betur á jólahátíð hjá Starfsmannafélagi Securitas. Mig langar að hrósa Jóni fyrir einstaklega góða þjónustu frá byrjun hugmyndasmíðarinnar til enda jólahátíðarinnar. Við munum pottþétt leita til PROevents aftur."
Steinn Jónsson
forseti stjórnar Starfsmannafélags Securitas
„PROevents hélt vel utanum skipulag ferðarinnar okkar sem var í senn skemmtileg, fjölbreytt og kom á óvart."
Starfsmannafélag Varðar trygginga
„Við hjá Nýherja vorum afar ánægð með undirbúning og framkvæmd sumarveislu fyrir viðskiptavini. Fagmennska fram í fingurgóma.“
Finnur Oddsson
forstjóri Origo
„PROevents sá um að skipuleggja og halda utan um árlega ferð stjórnenda í tengslum við vinnudag okkar. Við vorum mjög ánægð með samstarfið við Jón og þjónustuna í heildina. Ég get hiklaust mælt með því að fá PROevents til að sjá um ferðir og viðburði."
Anna Rós Ívarsdóttir
framkvæmdastjóri mannauðssviðs VÍS
Drífa Sigurðardóttir
starfsmannastjóri Mannvits
Ragga var með námskeið fyrir millistjórnendur hjá okkur í haust. Hún hefur einstakt lag að ná til hópsins með líflegri og skemmtilegri framsetningu á efninu. Mikil ánægja var með námskeiðið hjá öllum þátttakendum sem skilaði sér einnig einstaklega vel þegar stjórnendur þurftu að takast á við mjög krefjandi verkefni og aðstæður í vinnu á sama tíma og þjálfunin var í gangi, þá nýttist aðferðafræðin úr þjálfuninni sérlega vel með beinum hætti. Ragga náði að þjappa hópnum vel saman og mikil samstaða skapaðist innan hópsins.
Ég mæli hiklaust með henni hvort sem það er stjórnendanámskeið eða markþjálfun, hún er alltaf mjög fagleg með allt sem hún tekur sér fyrir hendur.
Þórey Jónsdóttir
Mannauðsstjóri Airport Associates
Proevents skipulagði stórglæsilegt afmælis- og innfluttningsboð fyrir okkur sem stóðst allar okkar væntingar. Ég var ánægður með þeirra framlag, allt gekk að óskum og kvöldið ótrúlega vel heppnað. Ég get svo sannarlega mælt með þeirra faglegu og flottu þjónustu.
Sigþór Kristinn Skúlason
Framkvæmdastjóri Airport Associates
Ég hef verið svo heppin að hafa Ragnheiði sem markþjálfa í um eitt ár. Hún er einstaklega þægileg, góður hlustandi og hjálpar manni að sjá erfið mál í öðru ljósi, með því að spyrja réttu spurninganna. Hún er einnig dugleg að hrósa, en það er mikilvægur eiginleiki sem eykur sjálfstraust og gefur aukna orku. Ég get mælt með Ragnheiði sem góðum stjórnenda markþjálfa.
Þórey Jónsdóttir
Mannauðsstjóri Airport Associates
„Við mælum heilshugar með PROevents og þeirra persónulegu og fagmannlegu þjónustu. Áttum stórgóðan hópeflisdag sem þau Ragga og Jón undirbjuggu fyrir nýjan hóp. Gætum ekki verið ánægðari. „
Áslaug Lind Guðmundsdóttir, Manager, RA Finance Sr.
„Takk fyrir góða ferð. Hún heppnaðist vel í alla staði og mannskapurinn er mjög ánægður.“
Hanna Ólafsdóttir
framkvæmdarstjóri Juris
Hjartans þakkir fyrir frábært samstarf við 10 ára afmælisráðstefnu VIRK og afmælishófið um kvöldið í Hörpu þann 4. maí sl. Allt var þaulskipulagt að hálfu PROevents og hvert atriði fagmannlega unnið. Gríðarlega mikil ánægja með allt samstarf og undirbúning þessara viðburða og ljóst að Jón er fagmaður fram í fingurgóma sem leggur mikla aðlúð í hvert smáatriði.
Auður Þórhallsdóttir
Sviðsstjóri mannauðsmála
Virk starfsendurhæfingarsjóður