Endilega sendu okkur lķnu

Lišsheildarmarkžjįlfun

Liðsheildarmarkþjálfun er markþjálfun fyrir hóp af fólki sem myndar eitt lið. Liðsheildin hefur sama markmið, dæmi: Eining í fyrirtæki sem á að ljúka ákveðnu verkefni s.s. innleiðingu á nýju kerfi, opnun á nýrri viðskiptaeiningu o.s.frv. Hér er áhersla á að hver liðsmaður sé mikilvægur hlekkur í keðjunni.
Gerð er góð þarfagreining áður en þjálfun hefst svo að tryggt sé að þjálfunin taki á þema og áskorunum liðsheildarinnar. Lengd þjálfunar getur verið allt frá 2 klst. upp í lengri þjálfun yfir ákveðið tímabil þar sem hópurinn hittist reglulega.
Þemu í liðsheildarmarkþjálfun geta verið af ýmsum toga svo sem:
    •    Skilvirk vinnubrögð
    •    Skilvirkari fundir
    •    Betri sala
    •    Betri þjónusta
    •    Jákvæð samskipti
    •    Tilfinningagreind
    •    Stjórnun viðhorfs
    •    Að ná valdi á streitunni
    •    Markmiðasetning
    •    Sterkari liðsheild
    •    Að efla áræði
    •    Að efla traust
    •    Aðlögun að breytingum
    •    Uppúr hjólfarinu - breyting á venju
    •    Framkvæmd breytinga
    •    Að efla eigin hæfni
    •    Að njóta í núinu
    •    Samvinna ólíkra hópa
    •    Samvinna ólíkra kynslóða


Til baka
Lišsheildarmarkžjįlfun